Viðurkenningar til ferðaþjónustubænda



Viðurkenningar til ferðaþjónustubænda

19.11.2014 | María Reynisdóttir

Á nýliðinni Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda veitti skrifstofa Ferðaþjónustu bænda 6 bæjum innan samtakanna viðurkenningar. Er það í fjórða sinn sem skrifstofan veitir verðlaun sem þessi en viðurkenningar voru veittar í tveimur flokkum.

Í flokknum Framúrskarandi ferðaþjónustubær 2014 fengu eftirfarandi viðurkenningu:

Einishús á Einarsstöðum
Hótel Lækur í Hróarslæk
Hótel Eldhestar á Völlum í Ölfusi

Viðurkenningar til ferðaþjónustubænda

Mynd (frá vinstri): Hrafn Norðdahl fyrir hönd Hótel Læks, Einir Viðar Björnsson og Guðfinna Sverrisdóttir frá Einishúsum og Fríða Rut Stefánsdóttir frá Eldhestum. 

Þessi viðurkenning er veitt fyrir einstaka frammistöðu á árinu og byggist matið á umsögnum gesta auk þess sem leitað var umsagna erlendra ferðaskrifstofa. Þá var einnig horft til þeirra gæða sem staðurinn stendur fyrir að mati starfsfólks skrifstofunnar.

Í flokknum Hvatningarverðlaun Ferðaþjónustu bænda 2014 fengu eftirfarandi viðurkenningu:

Fossatún í Borgarfirði
Vogur á Fellsströnd
Gauksmýri í Húnaþingi

Viðurkenningar til ferðaþjónustubænda

Mynd (frá vinstri): Guðmundur Halldórsson frá Vogi, Steinar Berg Ísleifsson frá Fossatúni og Sigríður Lárusdóttir og Jóhann Albertsson frá Gauksmýri. 

Starfsfólk skrifstofunnar óskar öllum ofangreindum ferðaþjónustubændum til hamingju með viðurkenningarnar. Það eru margir mjög frambærilegir staðir innan Ferðaþjónustu bænda og er það von starfsfólksins að þessar viðurkenningar verði öðrum hvatning til þess að vanda til verka og skara fram úr á sínu sviði – hver á sinn einstaka hátt!

í nágrenni