Hótel Fljótshlíð hlýtur umhverfisvottun norræna svansins



Hótel Fljótshlíð hlýtur umhverfisvottun norræna svansins

29.12.2014 | María Reynisdóttir

Nýlega hlaut Hótel Fljótshlíð, félagi í Ferðaþjónustu bænda, umhverfisvottun norræna svansins. Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra, afhenti vottunina þann 15. nóvember síðastliðinn með formlegum hætti í sal hótelsins. Hótelið er þar með komið í hóp sjö gististaða á landinu sem hafa hlotið umhverfisvottun norræna svansins en Hótel Fljótshlíð er fysta hótelið sem gengur í gegnum nýjar og hertar kröfur fyrir svansvottun.

Hótel Fljótshlíð er fjölskyldufyrirtæki, starfrækt að Smáratúni í Fljótshlíð. Ferðaþjónusta hófst þar árið 1986 þegar Sigurður Eggertsson og Guðný Geirsdóttir gerðust meðlimir að Ferðaþjónustu bænda. Árið 2006 komu dóttir þeirra og tengdasonur, Arndís Soffía Sigurðardóttir og Ívar Þormarsson matreiðslumeistari staðarins, inn í reksturinn. Hótel Fljótshlíð hefur unnið samkvæmt sjálfbærnisstefnu frá árinu 2007 og má segja að umhverfisvottunin í dag sé hápunktur þeirrar vinnu þó áfram verði unnið á átt að aukinni sjálfbærni.

Hótel Fljótshlíð er þriðji gististaðurinn innan Ferðaþjónustu bænda sem hlýtur svansvottun. Hinir eru Hótel Rauðaskriða í Aðaldal og Hótel Eldhestar á Völlum í Ölfusi. 

Hótel Fljótshlíð hlýtur svansvottun

Á myndinni eru frá vinstri: Elísabet Björney Lárusdóttir umhverfisráðgjafi, Arndís Soffía Sigurðardóttir hótelstýra, Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra og Elva Rakel Jónsdóttir teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun.

Við óskum Hótel Fljótshlíð innilega til hamingju með þennan áfanga!

í nágrenni