Bændamarkaður opnar á Efra-Seli



Bændamarkaður opnar á Efra-Seli

21.06.2013 | María Reynisdóttir
Bændamarkaður Efra-SeliBændamarkaður hefur nú opnað á Efra-Seli í Hrunamannahreppi þar sem finna má úrval ferskra matvara og handverks úr héraði.

Segja má að Bændamarkaðurinn komi í stað markaðarins sem staðsettur var á Flúðum um árabil og naut mikilla vinsælda. Bændamarkaðurinn á Efra-Seli verður rekinn með svipuðu sniði þar sem mikil áhersla er lögð á fjölbreyttar landbúnaðarafurðir sem framleiddar eru á Suðurlandi og þá einkum í uppsveitum Árnessýslu. Á markaðnum verður að finna kjötvörur, grænmeti, fisk, kryddjurtir, heimabakað bakkesli og fleira. Handverk frá sunnlensku handverksfólki verður einnig til sölu.
 
„Beint frá býli“ hefur notið sífellt meiri vinsælda þar sem fólk getur keypt gæðavöru beint af bónda. Bændamarkaðurinn er beinn tengiliður á milli viðskiptavina og bænda sem tryggir að matvara er ávallt fersk og af réttum gæðum. Það að matvaran er framleidd í smáum stíl en ekki fjöldaframleidd tryggir það. Grænmetisbændur í nágrenninu munu sjá til þess að ávallt sé til ferskt grænmeti og mun úrvalið aukast þegar líður á sumarið.

Opið er mánudaga - föstudaga frá 13.00 til 18.00. Laugardaga og sunnudaga er opið 11.00 til 18.00 í sumar.
 
Á Efra-Seli er einnig glæsilegur golfvöllur og veitingastaður, Kaffi Sel, þar sem aðalsmerkið eru heimalagaðar pizzur úr úrvals hráefni úr sveitinni. 

Nánari upplýsingar um Efra-Sel.


í nágrenni