Ferðaþjónusta bænda Framúrskarandi fyrirtæki 2012 hjá Creditinfo



Ferðaþjónusta bænda Framúrskarandi fyrirtæki 2012 hjá Creditinfo

20.02.2013 | María Reynisdóttir
Framúrskarandi fyrirtæki 2012Ferðaþjónusta bænda hf. er framúrskarandi fyrirtæki 2012 samkvæmt styrk - og stöðugleikamati Creditinfo 2012 og er á meðal þeirra fyrirtækja sem efla íslenskt efnahagslíf. Þetta er í þriðja sinn sem fyrirtækið hlýtur þessa viðurkenningu.

Ferðaþjónusta bænda hf er á meðal 1% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Creditinfo og hljóta þessa viðurkenningu en fyrirtækið var í 112. sæti á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins.. Af rúmlega 32 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá reyndust 358 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá þessa viðurkenningu.
 
Ferðaþjónusta bænda hf. er afar stolt af þessari viðurkenningu!

Upplýsingar um framúrskarandi fyrirtæki á heimasíðu Creditinfo.





í nágrenni