Ferðaþjónusta bænda skiptir um nafn á vörumerki



Ferðaþjónusta bænda skiptir um nafn á vörumerki

29.09.2016 | Bryndís Pjetursdóttir

Hey Iceland er nafn á nýju vörumerki Ferðaþjónustu bænda sem kemur í stað vörumerkisins Icelandic Farm Holidays sem félagið hefur fram til þessa notað í sölu- og markaðsstarfi sínu erlendis.

Nýja vörumerkið Hey Iceland er afrakstur viðamikillar stefnumótunar sem hefur átt sér stað undanfarin misseri hjá okkur en það hafa lengi verið vísbendingar uppi um að eldra heiti fyrirtækisins gæfi ekki raunsanna mynd af þeirri fjölbreyttu þjónustu og afþreyingu sem fyrirtækið býður upp á. 
 

Rainbow in West Iceland

 
Margt hefur breyst á undanförnum árum

Hey Iceland er nýtt vörumerki trausts og gamalgróins fyrirtækis sem býr yfir fjölþættri reynslu og þekkingu á ferðamálum. Ferðaþjónusta bænda var stofnuð af íslenskum bændum árið 1980. Forsagan nær þó allt aftur til ársins 1965 þegar Flugfélag Íslands tók að bjóða erlendum ferðamönnum að dvelja á íslenskum sveitaheimilum gegn gjaldi. Fyrstu árin gátu menn aðeins valið milli þeirra fimm bæja sem í boði voru. Þjónustan mæltist hins vegar strax vel fyrir og fyrsta árið voru gistinæturnar alls 330 - eða 66 nætur að meðaltali á hvern bæ. Árið 1971 voru gistinæturnar orðnar 550 en skiptust þá niður á 11 bæi. Framan af stóð þessi þjónusta aðeins útlendingum til boða og má til gamans geta þess að á bænum Fljótstungu í Hvítársíðu gisti fyrsti Íslendingurinn árið 1976. Eftir það varð hins vegar ekki aftur snúið og þremur árum seinna dvöldu þar íslensk hjón í heila viku.
 

Laundry drying at accommodation Ensku Húsin in West Iceland

 
Síðan hefur mikið breyst. Ekki aðeins hefur fjöldi ferðamanna aukist gríðarlega heldur hefur starfsemi ferðaþjónustubænda tekið miklum stakkaskiptum. Sveitabæirnir eru ekki lengur fimm talsins heldur rúmlega 170 og 60% af þeim sinna nú nær eingöngu ferðaþjónustu; selja gistingu og bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir einstaklinga jafnt sem hópa. Með hliðsjón af öllu framansögðu þótti tímabært að endurskoða einnig vörumerki félagsins, gera það einfaldara, alþjóðlegra og betur í takt við starfsemina.Hey er orð sem vísar til sveita landsins og sögu félagsins sem er okkur mjög mikilvæg – og Hey er líka vinaleg, alþjóðleg kveðja.

 
Hey Iceland!

Fylgdu okkur @HeyIceland on Facebook, Instagram and Twitter


 
 

í nágrenni