Hótel Rauðaskriða fyrsti stjörnuflokkaði gististaðurinn í VAKANN



Hótel Rauðaskriða fyrsti stjörnuflokkaði gististaðurinn í VAKANN

12.02.2015 | María Reynisdóttir

Hótel Rauðaskriða, sem er félagi í Ferðaþjónustu bænda, fékk síðastliðinn föstudag VAKA viðurkenningu sína afhenta, fyrst allra gististaða eftir að gistihluti hótelsins var innleiddur í þetta nýja gæða- og umhverfiskerfi. Ráðherra ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir afhenti eigendum viðurkenninguna á ferðakaupstefnunni Mid-Atlantic.

Eigendur Hótel Rauðaskriðu taka á móti viðurkenningunni

Á myndinni eru Elías Bj. Gíslason Ferðamálastofu, Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, Bergþóra Birgisdóttir og Harald Jóhannesson, eigendur og hótelstjórar Rauðuskriðu ásamt börnum sínum, og Alda Þrastardóttir Ferðamálastofu.

Hótel Rauðaskriða er 32 herbergja rúmgott og vel staðsett fjölskyldurekið hótel á Norðurlandi, rétt við Húsavík þar sem áhersla er lögð á umhverfið og náttúruna.

Hótel Rauðaskriða flokkast sem þriggja stjörnu hótel samkvæmt gæðaviðmiðum þeim sem unnið er eftir og sem taka mið af viðmiðum hotelstars í Evrópu. Auk þess fær Hótel Rauðaskriða GULL flokkun í umhverfishluta VAKANS en hótelið er einnig með Svansvottun.

Þess má geta að í gistihluta VAKANS eru nú tilbúin gæðaviðmið fyrir hótel, gistiheimili og heimagistingu og geta allir þeir sem reka gististaði í þessum þremur flokkum sótt um stjörnuflokkun nú þegar. Síðar á árinu munu svo bætast við gæðaviðmið fyrir hostel, tjaldsvæði og orlofsíbúðir og bústaði. Þetta nýja stjörnuflokkunarkerfi tekur nú við af eldra flokkunarkerfi sem Ferðamálastofa hefur séð um frá árinu 2000.

Nánari upplýsingar um Hótel Rauðaskriðu.

Nánari upplýsingar um VAKANN.

Við óskum eigendum Hótel Rauðuskriðu innilega til hamingju með þennan áfanga!


í nágrenni