Litli Geysir



Litli Geysir

Sveitahótel hjá hinu víðfræga hverasvæði við Geysi á Suðurlandi, einum kunnasta og fjölsóttasta ferðamannastað á Íslandi. Herbergin eru staðsett á tveimur stöðum á svæðinu, þ.e. á Litla Geysi og í smáhýsunum Geysir Cottages.  Öll herbergi eru með sérbaðherbergi.  Veitingastaðir, verslanir, margmiðlunarsýning um jarðfræði svæðisins og fjölmargt til afþreyingar og útivistar. Góð staðsetning skammt frá Gullfossi og liggur vel til skoðunarferða um Suðurland og inn á hálendið.  

Opið frá 1. feb. - 1. jan. 

Veldu dagsetningar
Frá:kr.
hver dvöl
Bóka núna

Þjónusta

  • Sér baðherbergi
  • Wi-Fi
  • Veitingastaður
  • Vínveitingar
  • Máltíðir ef bókað er fyrirfram
  • Sjónvarp inni á herbergjum
  • Golfvöllur í nágrenni
  • Hleðslustöð
  • Merktar gönguleiðir
  • Fundar- / Ráðstefnuherbergi
  • Tjaldsvæði

Í nágrenni

  • Geysir 
  • Geysir margmiðlunarsafn
  • Gullfoss 8 km
  • Fljótasigling á Hvítá 16 km
  • Reykholt (sundlaug og verslun) 19 km
  • Skálholt 29 km
  • Laugarvatn 29 km
  • Sólheimar sjálfbært samfélag 32 km
  • Þingvellir 48 km
  • Hekla 
  • Selfoss 60 km

Gistiaðstaða

Öll gistiaðstaðan er í göngufæri frá aðalbyggingunni þar sem móttakan og veitingastaðurinn er. 

Litli Geysir er gisting í 22 herbergjum í hótelbyggingu beint á móti hinum heimsfræga Geysi í Haukadal.  Öll herbergin eru með sérbaðherbergi, sjónvarpi, hárþurrku og ókeypis nettengingu.  Morgunverður er framreiddur frá kl. 8-10 á Litla Geysi.  

Einnig á svæðinu: 
Hótel Geysir 

Tjaldsvæði:
Á Geysi er einnig rúmgott tjaldstæði og stæði fyrir húsbíla og húsvagna. Öll gistiaðstaðan er í göngufæri frá aðalbyggingunni þar sem móttakan og veitingastaðurinn er. 

 
Veitingar/máltíðir

Yfir vetrartímann er veitingastaður opinn fyrir gesti frá kl. 18-21 á Litla Geysi.  Yfir sumartímann geta gestir borðað á veitingastaðnum Hótel Geysir. Mjög góður veitingastaður þar sem lögð er áhersla á rétti úr innlendu og heimafengnu hráefni. Veitingastaðurinn rúmar allt að 600 manns í sæti og þar er góð aðstaða til að halda veislur fyrir minni eða stærri hópa og fundi. Við hliðina á hótelinu, í Geysir Center, er annar veitingastaður, Geysir Glima Restaurant, bístró þar sem í boði er matur úr heimafengnu og innlendu hráefni. Í Geysir Center er einnig skyndibitastaður þar sem má fá hamborgara, pizzur, súpu og eitt og annað af léttara taginu.

 
Þjónusta/afþreying

Minjagripaverslun og verslunin Geysir með útivistarfatnað og fleira. Við hótelið er 9 holu golfvöllur. Gönguleiðir. Hestaferðir (5 km). Flúðasiglingar á Hvítá (16 km). Siglingar á hraðbátum upp eftir Hvítá (27 km). Sundlaug í Reykholti (19 km). Laugarvatn Fontana, spa and wellness centre (29 km). Næstu þéttbýli með verslun og ýmissi annarri þjónustu: Reykholt (19 km), Flúðir (25 km) og Selfoss (61 km).

 
Hversvæðið við Geysi - gönguleiðir

Hversvæðið við Geysi er eitt kunnasta jarðhitasvæði á Íslandi. Þar er frægasti goshver í heimi, Geysir (The Great Geysir), en gos úr honum um miðja síðustu öld náðu 60 – 80 m. Gos í Geysi hafa verið stopul í nokkra áratugi. Goshverinn Strokkur, skammt frá sjálfum Geysi, gýs hins vegar myndarlega á 10-15 mín. fresti. Frá Geysi liggur malarvegur inn í skógrækt í Haukadal (2 km). Þar eru merktar gönguleiðir. Í gegnum skóginn liggur vegaslóði upp á hálendisbrúnina; tilvalið að ganga þar upp og njóta kyrrðarinnar og útsýnis til fjalla og jökla.

 
Gullfoss – fegursti foss í Evrópu

Gullfoss (10 km) er frægasti foss á Íslandi og mörgum þykir hann einn fegursti foss í Evrópu. Fossinn fellur eftir tveimur þrepum niður í djúpt gljúfur og er hrífandi sjón hvort sem að sumri eða í klakaböndum að vetri. Hjá ferðamannamiðstöðinni við Gullfoss liggur fjölfarinn hálendisvegur milli Suður- og Norðurlands.

 
Skálholt, Þingvellir, Þjórsárdalur

Skálholt (29 km), var biskups- og menntasetur frá miðri 11. öld fram undir aldamótin 1800, staður sem á sér mikla sögu. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum (48 km) er með fegurstu stöðum á Íslandi. Þar var Alþingi Íslendinga háð í nær 9 aldir og þar var íslenska lýðveldið sett formlega á stofn 17. júní 1944. Þjórsárdalur (80 km) er sérstæð náttúruparadís í grennd við eldfjallið Heklu, óskaland þeirra sem vilja setja á sig gönguskóna og upplifa fjölbreytni íslenskrar náttúru. Í Þjórsárdal má einnig skoða endurgerðan bóndabæ frá víkingaöld.

Gestgjafi: Mábil Gróa. 

 

í nágrenni