Brekka í Aðaldal



Brekka í Aðaldal

Gistiheimili með 24 herbergjum, flestum með sérbaðherbergi, miðsvæðis á kunnum ferðamannaslóðum á Norðaustur-Íslandi, mitt á milli Mývatns og hvalaskoðunarbæjarins Húsavíkur. Bærinn stendur í hlýlegri sveit þar sem rennur ein frægasta laxveiðiá á Íslandi. Fjölbreyttir möguleikar til gönguferða og góð staðsetning til dagsferða um þennan landshluta. 1. mars til 1. nóvember (opið yfir jól og áramót).

Veldu dagsetningar
Frá:kr.
hver dvöl
Bóka núna

Þjónusta

  • Sameiginlegt baðherbergi
  • Sér baðherbergi
  • Fjölskylduherbergi 3+
  • Veitingastaður
  • Vínveitingar
  • Máltíðir ef bókað er fyrirfram
  • Golfvöllur í nágrenni

Í nágrenni

  • Grenjaðarstaður byggðasafn
  • Goðafoss 7 km
  • Hvalaskoðun frá Húsavík 30 km
  • Mývatn 32 km

Gistiaðstaða

20x2 manna og 1x3 manna herbergi í sérbyggingum, með sérinngangi og sérbaðherbergi með sturtu. 3 herbergi með sameiginlegu baðherbergi í íbúðarhúsi ábúenda, 1x2 manna, 1x3 manna og fjölskylduherbergi (hjónaherbergi og setustofa með koju í fremra herbergi). Ókeypis þráðlaust netsamband.

 
Veitingar/máltíðir

Veitingastaður með vínveitingaleyfi. Kvöldverður af matseðli. Hægt að fá útbúna nestispakka. Verönd við veitingastaðinn og setustofa með sjónvarpi þar sem gestir hafa aðgang að tölvum með háhraðanettengingu.

 
Þjónusta/afþreying

Gönguleiðir. Hestaferðir: Garður í Aðaldal (8 km) og Saltvík, rétt fyrir sunnan bæinn Húsavík (25 km). Hvalaskoðun og sjóstangaveiði frá Húsavík (30 km). Fuglaskoðun á bökkum Laxár. Gott byggðasafn á Grenjaðarstað (5 km) og Hvalasafnið á Húsavík. Sundlaugar: Heiðarbær í Reykjahverfi, í næsta dal í austurátt (10 km), og Laugar í Reykjadal (20 km). Næsta þéttbýli með verslunum, sundlaug, golfvelli og allri almennri þjónustu: Húsavík (30 km).

 
Gönguleiðir, byggðsafn í torfbæ, Goðafoss

Frá Brekku liggja leiðir til allra átta um landshluta þar sem eru margar af kunnustu náttúruperlum á Íslandi, heillandi gönguleiðir og fjölmargt til afþreyingar, fróðleiks og skemmtunar. Skammt frá bænum, á Grenjaðarstað, er gott byggðasafn í reisulegum íslenskum torfbæ frá síðasta áratug 19. aldar (5 km). Að Goðafossi, einum fegursta fossi landsins, þar sem enginn stenst þá freistingu að láta taka mynd af sér með glitrandi fossúðann í baksýn, eru 27 km frá Brekku.

 
Hvalaskoðun, Ásbyrgi, Jökulsárgljúfur

Frá Húsavík (30 km) eru í boði hvalaskoðunarsiglingar á hverjum degi, einstök upplifun í návígi við stærstu spendýr á Jörðinni. Áður en haldið er út á flóann er tilvalið að líta inn í Hvalasafnið þar sem má fá fræðslu og upplýsingar um hvali og búsvæði þeirra. Frá Húsavík eru 65 km til Ásbyrgis og Jökulsársgljúfra, í nyrsta hluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Um svæðið liggja fjölmargar merktar gönguleiðir, miserfiðar, allt frá 30 mín. skemmtigöngu upp í 2ja daga ferðir. Daglegar áætlunarferðir yfir sumarið frá Ásbyrgi í Vesturdal, einn þekktasta staðinn í Jökulsárgljúfrum, og að Dettifossi vestan megin.

 
Mývatn og töfrandi heimur náttúrunnar

Mývatn og næsta umhverfi þess (32 km) eru einn kunnasti ferðamannastaður á Íslandi, hlýleg sveit á bökkum vatnsins þar sem voldugri kraftar í glóandi iðrum Jarðar hafa mótað landið í tugþúsundir ára og eru enn að. Af stöðum í Mývatnssveit, sem enginn má láta undir höfuð leggjast að heimsækja, má nefna Dimnuborgir, Hverfjall, Grjótagjá, Skútustaðagíga, Kálfastrandarland, Lofthelli, Leirhnjúk, Kröflu og Hverarönd við Námafjall. Vegir og merktar gönguleiðir liggja að áhugaverðum stöðum og upplýsinga- og bókunarþjónusta fyrir ferðamenn er í þorpinu Reykjahlíð.


Gestgjafar: Reynir og Hólmfríður.

 

í nágrenni