Hofsstaðir í Skagafirði



Hofsstaðir í Skagafirði

Menn og hestar, sumarfegurð, víðsýni, úthafsöldur, jökulfljót og hömrum girtar eyjar. Á Hofsstöðum býðst bændagisting á gamalli landnámsjörð og áður kirkjustað miðsvæðis í Skagafirði á Norðurlandi. Staðurinn er á vinsælum ferðamannaslóðum og hentar þeim vel sem hyggja á skoðunarferðir um héraðið og til nágrannabyggða. Gönguleiðir, sögufrægir staðir, fjölbreytt afþreying og ævintýraferðir. Opið frá 1. apríl til 20. september.

Veldu dagsetningar
Frá:kr.
hver dvöl
Bóka núna

Þjónusta

  • Sér baðherbergi
  • Wi-Fi
  • Golfvöllur í nágrenni
  • Merktar gönguleiðir

Í nágrenni

  • Drangey
  • Sauðárkrókur 18 km
  • Hólar í Hjaltadal 20 km
  • Varmahlíð 24 km
  • Glaumbær 30 km
  • Vesturfarasetrið í Hofsósi 26 km
  • Skíðasvæðið Tindastóll 35 km
  • Sundlaug á Sauðárkróki og Hofsósi
  • Golf á Sauðárkróki
  • Hestaferðir í Varmahlíð
  • Flúðasiglingar 40 km

Gistiaðstaða

Fjögur snyrtilega búin tveggja manna herbergi með sérbaði í sérálmu heima á bænum. Frítt þráðlaust netsamband er í öllu húsinu.

 
Veitingar

Morgunverður er innifalinn í verði og er hann borinn fram á Sveitasetrinu Hofsstöðum sem er í 450 m fjarlægð frá bænum. Þar er einnig að finna veitingastað og bar þar sem boðið er upp á heimilislegan mat með áherslu á hráefni úr héraðinu.

 
Afþreying og þjónusta

Gönguferðir. Fjallgöngur. Sundlaugar á Sauðárkróki (18 km) og í Hofsós (26 km). 9 holu golfvöllur á Sauðárkróki. Sigling og ganga upp á hamraeyna Drangey sem blasir við frá Hofsstöðum (farið á sumrin frá Reykjum, bæ á ströndinni skammt norður af Sauðárkróki). Hestaleiga og flúðasigling. Byggðasafn. Skíðasvæði skammt frá Sauðárkróki er opið á vetrum. Verslanir og öll almenn þjónusta á Sauðárkróki (18 km frá Hofsstöðum).

 
Fljótsniður og fjallaloft

Frá Hofsstöðum er tilvalið að bregða sér í gönguferðir til þess að komast í snertingu við náttúruna og njóta útsýnis yfir héraðið. Merkt gönguleið er frá sveitahótelinu á Hofsstöðum (500 m frá bænum) niður á bakka jökulfljótsins, Eystri-Héraðsvatna, og síðan út með eylendinu við kvíslar fljótsins þar sem er auðugt fuglalíf. Á fjallið fyrir ofan bæinn eru tvær stikaðar gönguleiðir. Af fjallinu er mikið útsýni yfir Skagafjörð og ógleymanlegt að horfa þar á miðnætursólina ganga til viðar.

 
Í fótspor biskupa og alþýðufólks

Einn kunnasti sögu- og menningastaður á Íslandi, Hólar í Hjaltadal, eru í aðeins 20 km akstur frá Hofsstöðum. Þar var biskupssetur fyrir norðan¬vert Ísland í nærri 7 aldir. Í hugum Íslendinga hvílir enn helgi yfir þessum stað í hlýlegum, þröngum fjalladal. Þar má skoða elstu steinkirkju landsins, frá 1763. Í Hofsós (26 km) er Vesturfarasetur, safn um Íslendinga sem fluttust til Vesturheims á s.hl. 19. aldar. Í Hofsós er sundlaug á sjávarbakka með ein¬stöku útsýni yfir fjörðinn.

 
Gamlir tímar, dalir og gljúfrabúar

Hofsstaðir eru kjörinn staður til skoðunarferða um Skagafjörð. Í Glaumbæ (30 km) er byggðasafn í stórum íslenskum torfbæ eins og þeir gerðust reisulegastir á seinni hluta 19. aldar. Syðst í héraðinu eru framsveitir Skagafjarðar, heillandi slóðir fyrir útvistarfólk og náttúruunnendur. Þar, frá Bakkaflöt í Steinsstaðabyggð (11 km frá Varmahlíð), gefst kostur á að fara í 3 klst. flúðasiglingu sem hentar öllum að prófa (aldurslágmark 12 ár). Hestaleiga er á Lýtingsstöðum sem eru um 5km framar en Steinsstaðabyggð.


Gestgjafar:  Þórólfur og Guðný.

 

í nágrenni