Gistiheimilið Ormurinn



Gistiheimilið Ormurinn

Á Gistiheimilinu Ormurinn er boðið upp á herbergi sem deila baðherbergi og sumarhús á fallegum stað á bökkum Lagarfljóts, innan við 3 km frá þéttbýlinu Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði. Fjölbreyttir möguleikar til gönguferða, afþreyingar og útivistar. Góð staðsetning fyrir skoðunarferðir um héraðið og Austfirði. Opið allt árið.

Veldu dagsetningar
Frá:kr.
hver dvöl
Bóka núna

Þjónusta

  • Sameiginlegt baðherbergi
  • Fjölskylduherbergi 3+
  • Bústaður
  • Wi-Fi
  • Eldunaraðstaða
  • Golfvöllur í nágrenni

Gistiaðstaða

Gistiheimilið er staðsett í götunni Ullartangi og er boðið upp á 5 herbergi sem deila 2 baðhergjum (2x2ja manna, 1x3ja manna og 1x4ra manna herbergi). 


Einnig 5 sumarhús (A-hús) á bökkum Lagarfljóts með fögru útsýni. Baðherbergi með sturtu, eldhúskrókur með tveimur eldavélarhellum og ísskáp. Lítið sjónvarp, útvarp og gasgrill.

Sjá nánari lýsingu hér:

-  3 sumarhús m/einu hjónaherbergi og svefnsófa í stofu. Hentar vel fyrir 2 fullorðna og 2 börn.

-  2 x 2 manna hús/stúdíó. Möguleiki á einu aukarúmi fyrir barn.

Á tímabilinu 1. júní - 1. okt er móttaka fyrir Gistiheimilið Ormurinn á Skipalæk sem er í göngufæri frá gistiheimilinu.

Veitingar/máltíðir

Eldunaraðstaða er í boði fyrir gesti. Stutt er í bakarí og matvöruverslanir. Einnig er hægt að fara í morgunverð á hótel eða veitingastað í nágrenninu.

 
Þjónusta/afþreying

Hestaleiga er á Skipalæk sem er í göngufæri frá gistiheimlinu og sumarhúsunum; í boði eru stuttar ferðir um fallegt svæði. Nokkurra mínútna gangur í golf á Ekkjufellsvelli, 9 holur, par 35 (500 m). Fjölbreyttir möguleikar, á sumrin og veturna, til hvers konar afþreyingar og útivistar í næsta nágrenninu. Til þéttbýlisins Egilsstaða, þar sem eru verslanir, veitingastaðir, góð sundlaug og ýmis almenn þjónusta, eru aðeins 3 km gistiheimilinu. Á Egilsstöðum er upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, þar sem m.a. má fá gott gönguleiðakort af svæðinu. Reglulegar áætlunarferðir í innanlandsflugi milli Reykjavíkur og Egilsstaða. Til Seyðisfjarðar, þar sem ferjan Norræna leggur að bryggju, eru 30 km.

 
Fljótsdalshérað – heillandi heimur frá fjöru til fjalla

Gistiheimilið Ormurinn stendur á bökkum Lagarfljóts, í suðurjaðri þorpsins Fellabæjar, skammt frá brúnni yfir fljótið (vegur nr 1) og Egilsstaðaflugvelli sem er þar hinum megin á bakkanum. Héðan liggja vegir til allra átt í skoðunarferðir um Fljótsdalshérað, fallegt, fjölbreytt og einkar veðursælt í suðlægum áttum. Náttúruunnendur og göngufólk hafa um margt að velja, t.d. Stórurð undir Dyrfjöllum, Hengifoss (næsthæsta foss á Íslandi) og Hallormsstaðaskóg. Einnig má mæla með heimsókn að menningar- og fræðasetrinu Skriðuklaustri. Þar er einnig Snæfellsstofa, upplýsingamiðstöð og fræðslusetur um eystri hluta Vatnajökulsþjóðgarðs.

 
Heiðarbýlin - Sænautasel

Upp af Fljótsdalshéraði eru mikil heiðalönd þar sem víða var búið við erfiðar aðstæður allt fram á 19. öld og f.hl. síðustu aldar. Í heiðabýlinu Sænautaseli (72 km) var búið frá 1843-1943. Sagt er að þetta býli hafi verið fyrirmynd að heiðakotinu í skáldsögunni Sjálfstætt fólk eftir nóbelsskáldið Halldór Laxness. Húsakynni, með hinu gamla yfirbragði heiðakotanna úr torfi og grjóti, hafa nú verið gerð upp og eru til sýnis fyrir ferðamenn auk þess sem veitingar eru í boði.

 
Hlýleg sjávarþorp og útvegsbæir á Austfjörðum

Frá Gistiheimilinu Ormurinn má bregða sér í dagsferðir til fjarðanna sunnan við Fljótsdalshérað. Borgafjörður eystri (70 km) er víðkunnur staður fyrir náttúrufegurð. Yfir til Seyðisfjarðar, um Fjarðarheiði, sem er fallegt sjávarpláss í þröngum faðmi hárra fjalla, eru aðeins 30 km. Um Fagradal liggur leiðin til Reyðarfjarðar (35 km) og þaðan til Eskifjarðar (15 km); á báðum þessum stöðum eru t.d. áhugaverð söfn. Frá Reyðarfirði er ekið um göng til Fáskrúðsfjarðar (17 km), smábæjar við fagran fjörð þar sem er einstakt safn og margt til minja um franska skútusjómenn sem höfðu þar bækistöð á síðari hluta 19. aldar og fram á þá 20. 

Gestgjafi: Bryngeir Daði.

 

í nágrenni