Engi og hraun - 2 klst. hestaferð með Eldhestum
Í þessum 1,5 - 2 klukkustunda reiðtúr gefst gott tækifæri til að upplifa íslenska hestinn og hans einstaka mjúka göngulag, tölt, sem og fallegt umhverfi í nágrenni Eldhesta, bæði engi og hraunbreiður. Í lok reiðtúrsins er boðið upp á kaffi og heimabakað bakkelsi. Þessi ferð er í boði allt árið.