Kaup Ferðaþjónustu bænda hf. á Ferðaskrifstofu Harðar Erlingssonar



Kaup Ferðaþjónustu bænda hf. á Ferðaskrifstofu Harðar Erlingssonar

02.11.2026 | Hildur Fjóla Svansdóttir

Ferðaþjónusta bænda hf. hefur keypt Ferðaskrifstofu Harðar Erlingssonar, sem starfar undir merkinu Erlingsson Naturreisen. Fyrirtækin eiga sér samanlagt yfir 80 ára sögu í íslenskri ferðaþjónustu. Bæði hafa frá upphafi byggt á virðingu fyrir náttúru landsins og traustu samstarfi við heimamenn um allt land.

Erlingsson Naturreisen hefur í yfir 45 ár sérhæft sig í sérsniðnum náttúru-, menningar- og gönguferðum um Ísland fyrir þýskumælandi ferðamenn. Ferðaþjónusta bænda hf. var stofnað fyrir 35 árum af ferðaþjónustubændum og undir merkjum Hey Iceland eru boðið upp á fjölbreyttar ferðaupplifanir á Íslandi. Þá hafa margir Íslendingar farið út í heim með Bændaferðum og Súlu Travel sem eru önnur vörumerki fyrirtækisins.

Sameiginleg sýn
„Hér sameinast tvö rótgróin fyrirtæki sem deila sömu áherslu á gæði, fagmennsku og persónulega þjónustu. Með sameinuðum kröftum styrkjum við stöðu okkar á þýskumælandi mörkuðum og höldum áfram að leggja okkar lóð á vogarskálarnar fyrir ferðaþjónustu um land allt,“ segir Sævar Skaptason, stjórnarformaður Ferðaþjónustu bænda, sem leitt hefur viðræðurnar fyrir hönd fyrirtækisins.

Erlingsson Naturreisen verður áfram rekið undir eigin merki og allar bókanir haldast óbreyttar. Hjá Naturreisen starfar fólk með mikla sérþekkingu á þýskumælandi mörkuðum og verður það góð viðbót við starfsmannahóp Ferðaþjónustu bænda hf. í Síðumúla 2.

„Það skiptir mig miklu máli að starfsemin og viðskiptavinirnir fari í hendur fyrirtækis sem deilir sömu gildum og sýn á íslenska náttúru og samfélag.“ segir Hörður Erlingsson.

„Þetta er spennandi skref fyrir okkur,“ segir Berglind Viktorsdóttir, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda hf. „Ferðaskrifstofa Harðar Erlingssonar hefur gott orðspor og reynslu sem fellur vel að okkar áherslum á gæði, persónulega þjónustu og vöruþróun. Saman getum við boðið viðskiptavinum enn fjölbreyttari ferðaupplifanir í takt við þarfir hvers og eins.“

Á myndinni eru Erna Jóna Sigmundsdóttir og Hörður Erlingsson frá Erlingsson Naturreisen, og frá Ferðaþjónustu bænda hf. Berglind Viktorsdóttir framkvæmdastjóri og Sævar Skaptason stjórnarformaður.

í nágrenni