Ferðaþjónusta bænda Framúrskarandi fyrirtæki



Ferðaþjónusta bænda Framúrskarandi fyrirtæki

09.02.2015 | María Reynisdóttir

Framúrskarandi fyrirtækiFerðaþjónusta bænda hf. er Framúrskarandi fyrirtæki samkvæmt styrk - og stöðugleikamati Creditinfo 2014 og er á meðal þeirra fyrirtækja sem efla íslenskt efnahagslíf. Þetta er í fimmta sinn sem fyrirtækið hlýtur þessa viðurkenningu, sem telst gullviðurkenning.

Ferðaþjónusta bænda hf er á meðal 1,7% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika og hljóta þessa viðurkenningu en fyrirtækið var í 229. sæti á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins.

Af rúmlega 34 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá reyndust 577 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá þessa viðurkenningu. Til þess að eiga kost á henni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo.

Ferðaþjónusta bænda hf. er afar stolt af þessari viðurkenningu!

Upplýsingar um framúrskarandi fyrirtæki á vef Creditinfo.

í nágrenni