Engin laus staða er eins og er hjá Hey Iceland - Bændaferðum. Við tökum þó alltaf við umsóknum frá áhugasömum og hvetjum þig til að senda okkur umsókn ásamt kynningarbréfi ef þú hefur áhuga á að starfa hjá Hey Iceland á netfangið atvinna(hjá)heyiceland.is.
Um Hey Iceland - Bændaferðir
Ferðaskrifstofan er leiðandi fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu og á sér yfir 30 ára sögu.
Innanlandsdeild Hey Iceland býður upp á fjölbreytt úrval af gistingu á meira en 140 gististöðum landið um kring - allt frá hefðbundinni bændagistingu upp í glæsileg sveitahótel. Einnig afþreyingu við allra hæfi sem er í boði hjá gististöðum og öðrum afþreyingaraðilum víða um land.
Hey Iceland sem hét áður Ferðaþjónusta bænda var stofnuð af bændum árið 1980 og er samnefnd ferðaskrifstofa enn í meirihluta eigu bænda.
Utanlandsdeild Ferðaþjónustu bænda, Bændaferðir býður upp á fjölbreyttar ferðir út um allan heim fyrir þá sem hafa áhuga á að ferðast áhyggjulaust, kynnast menningu og öðlast fræðslu með íslenskri fararstjórn. Lögð er áhersla á rútuferðir um Evrópu og Kanada og síðastliðin ár hefur bæst við úrval hreyfiferða, þar sem Bændaferðir er umboðsaðili World Marathon Majors maraþonhlaupanna.
Hey Iceland er vottað af gæða- og umhverfiskerfi Vakans og er skrifstofan í fararbroddi í sjálfbærri ferðaþjónustu á Íslandi.