01.12 2015
Þrjú gistiheimili innan Félags ferðaþjónustubænda fengu viðurkenningu Vakans á Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda sem haldin var hátíðlega þann 16. nóvember síðastliðinn á Hótel Natura. Þetta voru Gistihúsið Narfastöðum, Brunnhóll og Sólheimahjáleiga sem nú flokkast öll sem fjögurra stjörnu gistiheimili. Að auki fengu Narfastaðir gullmerki í umhverfiskerfi Vakans og Brunnhóll bronsmerkið.
30.11 2015
Gefðu ljúfar stundir sem endast ævilangt í jólapakkann í ár. Gjafabréf frá Ferðaþjónustu bænda – Bændaferðum er tilvalin gjöf til þeirra sem hafa gaman af því að ferðast, jafnt innanlands sem utan.
23.11 2015
Uppskeruhátíð Félags ferðaþjónustubænda var haldin hátíðleg mánudaginn 16. nóvember síðastliðinn í Reykjavík. Á hátíðinni veitti starfsfólk skrifstofu Ferðaþjónusta bænda félagsmönnum viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur og hvatningaverðlaun en alls fá 6 bæir viðurkenningu, þrír í hvorum flokki. Þetta er í fimmta skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar.