Jól í Álfhóli - Jólastemning í sveitinni!



Jól í Álfhóli - Jólastemning í sveitinni!

18.12.2009 | Berglind Viktorsdóttir

Helgarnar 28. og 29. nóvember og 5. og 6. desember verður árlegur jólamarkaður í Álfhól á Bjarteyjarsandi. Margt verður með hefðbundnu sniði, svo sem eins og einstök jólastemning, fallegt handverk og listmunir, rjúkandi heitt súkkulaði og jólakökur, tónlistarflutningur og upplestur. 

Laugardaginn 28. nóvember kl. 13.30 heimsækir Vilborg Davíðsdóttir Álfhól og les úr bók sinni um Auði Djúpúðgu. Guðmundur Steingrímsson mætir sunnudaginn 29. nóvember kl. 13.30 og les úr barnabók sinni um sérkennilega svínið Pétur. Ýmsar nýjungar líta einnig dagsins ljós, nýir listamenn ganga til liðs við Álfhól og sala afurða beint frá býli verður fyrirferðarmeiri en áður. Þá má geta þess að hægt verður að kaupa súrt hvalrengi í Álfhól þetta árið – a.m.k. á meðan birgðir endast!

Opið milli klukkan 13 og 17 báða dagana.

Endilega komið og upplifið einstaka jólastemningu í sveitinni fjarri ys og þys hversdagsins.

í nágrenni