Sóttkvíardvöl á Hótel 1001 nótt
Tilboð á sóttkvíardvöl á Hótel 1001 nótt. Hótel 1001 nótt er fjölskyldurekið hótel á einni hæð á bökkum Lagarfljóts, rétt sunnan við Egilsstaði. Öll herbergin eru með sérbaðherbergi, sérinngangi og lítilli verönd. Hótelið stendur í fallegu umhverfi, með útsýni yfir Lagarfljót og upp til fjalla. Fjölbreyttir möguleikar til gönguferða í næsta nágrenni; góð staðsetning til skoðunarferða um Hérað og norðanverða Austfirði.
Sóttkvíartilboð: Verð fyrir tveggja manna herbergi 19.800,- kr. nóttin. Verð fyrir eins manns herbergi 14.300,- kr. nóttin. Fæðispakki 12.000,- kr. fyrir manninn.
Sóttkvíar bílaleigupakki:6 dagar, bíllinn sóttur á Keflavíkurflugvöll (gildir frá 16. september 2020)
• Economy: 30.300 kr. (VW Polo, Suzuki Swift 4x4 eða sambærilegir bílar)
• Compact: 30.900 kr. (VW Golf, Kia Ceed, Suzuki S-Cross 4WD eða sambærilegir bílar)
Ferðalög til og á Íslandi á Covid tímum