Gistiaðstaða
3x2 manna og 2x4 manna herbergi (eitt 1,60 m breitt rúm og 90 cm breið koja) í eldra íbúðarhúsinu á bænum sem reist var laust eftir miðja síðustu öld en gert upp árið 2015. Tvö sameiginleg baðherbergi. Þægileg setustofa með sjónvarpi, vel búið sameiginlegt eldhús og glæsileg verönd með garðhúsgögnum, gasgrilli og heitum potti.
Veitingar/máltíðir
Morgunverður er innifalinn í verði. Að öðru leyti sjá gestir um máltíðir sjálfir. Næsta matvöruverslun er í þorpinu Varmahlíð (5 km) og þar er einnig opinn veitingastaður, á Hótel Varmahlíð, frá 15. maí til 15. sept.
Þjónusta/afþreying
Á Syðra-Skörðugili er hestaleiga allan ársins hring og einnig eru í boði lengri hestaferðir og hestasýningar. Gönguleiðir. Flúðasiglingar. Fuglaskoðun. Söfn og sögustaðir. Fjölbreyttir möguleikar til dagsferða á bíl um héraðið. Næsta sundlaug er í Varmahlíð (5 km) og þar er einnig upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Næsti þéttbýlisstaður með verslunum, veitingastöðum, sundlaug, golfvelli og ýmissi almennri þjónustu: Sauðárkrókur (21 km).
Ævintýri með íslenska hestinum
Á Syðra-Skörðugili er rekinn hestabúgarður. Húsbóndinn er reiðkennari, stundar tamningar og þjálfun knapa og hesta. Fjölskyldan hefur stundað hestamennsku til fjölda ára og náð góðum árángri í keppni jafnt innanlands sem og utan. Frá Syðra-Skörðugili eru skemmtilegar útreiðarleiðir og er hestaleiga opin daglega allt árið. Þar eru í boði allt frá 1-4 klst reiðtúrar. Á veturnar er einungis í boði 1 klst reiðtúr. Þá er einnig efnt til hestasýninga á sumrin á hringvelli við hesthúsið. Sýndar eru allar gangtegundir íslenska hestins og gestum gefst kostur á að ganga um hesthúsið, heilsa upp á hestana og spjalla við heimilisfólkið. Frá Syðra-Skörðugili eru einnig skipulagðar lengri hestaferðir, 4-5 daga ferðir, sjá nánar á www.riding-iceland.com.
Stórbrotin náttúra, söguslóðir og söfn
Í Skagafirði er víða að finna freistandi slóðir fyrir náttúruunnendur og göngufólk. Frá Syðra-Skörðugili er ekki lengi verið að aka fram héraðið þangað sem tekur við töfrandi og ægifagur heimur Vesturdals og Austurdals þar sem ekkert rýfur kyrrðina nema þungur niður jökukfljótanna í hrikalegum gljúfrum. Þarna rís Mælifellshnjúkur við himin í suðri (1.147 m) og freistar þeirra sem njóta þess að leggja á brattann. Skammt í norður frá Syðra-Skörðugili (4 km) er svo einn af myndarlegustu íslensku torfbæjunum, sem enn standa, Glaumbær, og hýsir vandað og áhugavert byggðasafn sem veitir gestum innsýn inn í líf og kjör genginna kynslóða.
Á slóðum útilegumanna, biskupa og Vesturfara
Frá Syðra-Skörðugili liggur þjóðbraut 75 út á Sauðárkrók, útgerðar-, iðnaðar- og verslunarmiðstöð héraðsins (21 km). Frá bænum er ekki lengi ekið út á Reykjaströnd þaðan sem eru í boði ferðir út í hamraeyna Drangey. Hún er helsta kennileiti fjarðarins; ein kunnasta hetja Íslendingasagna, útlaginn Grettir, hafðist þar við sín síðustu ár. Hólar í Hjaltadal (37 km), biskups- og menntasetur allt fram undir lok 18. aldar, er einkar hlýlegur, fallegur og magnþrunginn staður og þar má m.a. sjá elstu steinkirkju á Íslandi. Þar er nú háskóli. Í þorpinu Hofsós, aðeins utar með austurströnd fjarðarsins, er einstakt safn um Vesturferðir Íslendinga til Kanada og Bandaríkjanna undir lok 19. aldar.
Gestgjafar: Elvar og Fjóla.