Fjallaskíðanámskeið á Tröllaskaga
Þriggja daga fjallaskíðanámskeið sem hentar bæði þeim sem vilja kynnast heimi fjallaskíðamennskunnar, sem og þeim sem vilja auka við þekkingu sína í einstöku umhverfi á norðurhjara. Þátttakendur fá þjálfun og fræðslu við hæfi og fá svo að beita nýfenginni þekkingu í sumum skemmtilegustu skíðabrekkum landsins.
Þetta er frábær ferð fyrir þá sem vilja sleppa úr amstri hversdagsins og anda að sér fersku fjallalofti. Ferðast verður um fjöllin sem umlykja Fljótin og Siglufjörð, þar sem tækifæri gefst að skíða frá fjallstoppi til sjávar. Þegar komið er á Sóta Lodge eftir góðan dag getur þú látið líða úr þér og slappað af – gestgjafarnir sjá til þess að þú njótir og nærist vel.
Þessi ferð hentar öllum sem eru í góðu líkamlegu formi og hafa einhverja reynslu af skíðamennsku. Leiðsögumaður mun passa að gönguhraðinn og brekkur henti öllum í hópnum.
Ferðatilhögun
Við munum leggja land undir fót og byrja ævintýrið okkar í Fljótunum. Við höldum upp svokallaða Almenninga þar sem mikilfenglegt útsýni er yfir Siglufjörð, Tröllaskagann og Norðuríshafið. Þar má reikna með að hækkun sé í kringum 1000 m. Næsti fjörður er hinn fagri Héðinsfjörður. Snævi þakin fjöllin líta út eins og óskrifuð blaðsíða sem bíður eftir að þú setjir þínar skíðalínur í landslagið. Helstu skíðabrekkur sem má nefna eru Fossaskörð, Hestskarðið, Fílaskálahnjúkur ásamt mörgum fleiri. Síðasti fjörður ferðarinnar er Siglufjörður. Þar munum við halda upp Skarðsdalinn, í átt að Presthnjúk. Frábært útsýni er þar yfir Siglufjörð og þann fjallasal sem umlykur hann.
Fjallaskíði og slökun á Sóta Lodge er eftirminnileg blanda sem að þú ættir ekki að láta framhjá þér fara.
Markmiðið er að í lok ferðar séu gestir endurnærðir á líkama og sál, andlega upprifnir og líkamlega þreyttir eftir góða daga á fjöllum.
- Verð á mann í eins manns herbergi: 129.000 kr.
- Verð á mann í tveggja manna herbergi: 89.500 kr.
Dagsetningar
- 24. - 27. mars UPPSELT
- 8. – 10. apríl
- 22. – 24. apríl
Vinsamlegast hafið samband ef áhugi er á ferð á öðrum dagsetningum en þeim sem eru í boði í vefsölu.